Er Skjár Einn að reyna að drepa mann úr leiðindum? Hvað er málið
með dagskrána á þriðjudögum? Ég er að tala um TVO BRÚÐKAUPSÞÆTTI Í
RÖÐ! Eins og einn sé ekki NÓG!
Þannig ég ákvað að blogga bara...
Núna styttist óðum í Bandaríkjaferðina ógurlegu og hlakka ég
óstjórnlega mikið til skal ég nú segja ykkur. En ég nenni ekki að
tala um það því það gerir mig bara spenntari 
Fór í neglur í gær með Skelfunni minni og það að hafa hip og
cool gervineglur er ekkert grín. Því komst ég að í morgun þegar ég
klæddi mig í sokkana mína við mikið erfiði. Ekkert voðalega gaman
heldur að pikka á lyklaborðið...
Mig langar í trampólín.

HRESSANDI!!
"Years from now I wont remember every friday
night or the things that made us laugh so hard till our stomach
hurt. But...I will always remember that you were the ones who were
there"
VÆMIN.IS
Stundum þá langar mig að fá MS árin aftur. Eða
bara einn dag.
Held samt að maður hafi ekkert endilega vitað þá
hvað þetta var skemmtilegur tími.
Svona er maður nú skrýtinn.
Sá þetta einhvers staðar!!
BELJA Í TEYGJUSTÖKKI

Nú eru leiðindin víst búin þannig ég er farin að
gera eitthvað uppbyggilegt.